Terms of service

1. Gildissvið

Þessi vefverslun er rekin af Glacier Golf.
Með því að nota vefsíðuna glaciergolf.is og/eða kaupa vörur í gegnum síðuna samþykkir notandi eftirfarandi skilmála.

Glacier Golf áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er án fyrirvara. Nýjustu útgáfu skilmála má ávallt finna á glaciergolf.is.

 

2. Upplýsingar

Netfang: Glaciergolf@glaciergolf.is


3. Verð og greiðslur

Öll verð á vefsíðunni eru birt í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt (VSK).

Glacier Golf áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara, sem og að hætta sölu vara eða leiðrétta rangar verðmerkingar eða upplýsingar.

Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt sem uppfyllir viðeigandi öryggiskröfur.


4. Afhendingarmáti

Vörur eru afgreiddar innan 1–3 virkra daga, nema annað sé tekið fram.
Við tilkynnum tafir ef þær koma upp.

Glacier Golf ber ekki ábyrgð á töfum sem verða hjá þriðja aðila eða aðstæðna utan okkar stjórnunar, svo sem flutningsaðilum, veðri o.fl.

 

5. Skilaréttur og endurgreiðslur

Við tökum við skila- og endurgreiðslubeiðnum innan 14 daga frá móttöku vöru, svo lengi sem varan er ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Ef varan er gölluð, vinsamlegast hafðu samband og sendu myndir – við bjóðum annaðhvort nýja vöru eða endurgreiðslu.

- Ef vara er keypt á afslætti, fæst hún endurgreidd í samræmi við þá upphæð sem viðskiptavinur keypti vöru á. 

Ekki er hægt að skila:

  • vörum sem hafa verið notaðar,
  • sérpöntuðum vörum,
  • eða vörum sem hafa verið sérmerktar fyrir kaupanda.

Endurgreiðsla fer fram þegar vara hefur verið móttekin og yfirfarin.


6. Ábyrgð og gallar

Ef vara reynist gölluð eða skemmd við afhendingu skal kaupandi hafa samband við Glacier Golf eins fljótt og auðið er.

 

7. Hugverkaréttur

Allt efni á glaciergolf.is - þar með talið texti, myndir, lógó eða annað efni - er eign Glacier Golf og má ekki nota án skriflegrar heimildar. 


8. Persónuvernd

Við hjá Glacier Golf vinnum aðeins með þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru til að klára viðskipti (nafn, netfang, heimilisfang, greiðsluupplýsingar).
Við deilum aldrei upplýsingum með þriðja aðila nema þegar það er nauðsynlegt vegna afhendingar (t.d. með flutningsaðilum).

 

9. Takmörkun ábyrgðar

Glacier Golf leitast við að tryggja að allar upplýsingar á vefsíðunni séu réttar og uppfærðar. Þó geta komið upp villur í lýsingum, verði, myndum eða öðrum upplýsingum. Glacier Golf áskilur sér rétt til að leiðrétta slíkar villur án fyrirvara.

Glacier Golf ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, tekjutapi eða öðrum afleiddu skaða sem kann að hljótast af notkun vefsíðunnar eða þeirra vara sem seldar eru í gegnum hana.

Ábyrgð Glacier Golf á hverjum tíma takmarkast við kaupverð þeirrar vöru sem viðskiptavinur hefur keypt, nema annað sé kveðið á um í lögum.

Við berum ekki ábyrgð á töfum eða vanefndum sem rekja má til atvika utan okkar stjórnunar, svo sem náttúruhamfara, verkfalla, bilana í flutningskerfum eða annarra ófyrirsjáanlegra aðstæðna.

10. Samskiptaupplýsingar

Ef spurningar vakna sem við höfum ekki svarað í skilmálum, vinsamlegast hafðu samband:
Glaciergolf@glaciergolf.is